Collector
Þrír látnir eftir árás unglinga fyrir utan mosku | Collector
Þrír látnir eftir árás unglinga fyrir utan mosku
Fréttastofa RÚV

Þrír látnir eftir árás unglinga fyrir utan mosku

Þrír voru skotnir til bana þegar tveir táningar hófu skothríð við mosku í San Diego í Kaliforníu fyrr í kvöld. Einn hinna látnu starfaði þar sem öryggisvörður. Árásarmennirnir, sem voru 17 og 19 ára gamlir, eru einnig látnir. Þeir fundust í bíl fyrir utan moskuna og talið er að þeir hafi svipt sig lífi. Árásin var gerð við Islamic Center sem ku vera stærsta moska í San Diego-sýslu. Hún er talin vera hatursglæpur.

Go to News Site