Collector
Trump kveðst hafa hætt við stórfellda árás á Íran vegna vonar um friðarsamkomulag | Collector
Trump kveðst hafa hætt við stórfellda árás á Íran vegna vonar um friðarsamkomulag
Fréttastofa RÚV

Trump kveðst hafa hætt við stórfellda árás á Íran vegna vonar um friðarsamkomulag

Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa hætt við fyrirhugaða stóratlögu að Íran vegna vonarglætu um að friðarsamkomulag að undirlagi Sáda, Katara og stjórnvalda í Sameinuðu arabísku furstadæmunum væri við sjóndeildarhringinn. Árás hefði verið á teikniborðinu eftir að klerkastjórnin hafnaði samningsdrögum Bandaríkjanna í gær sem óásættanlegum, líkt og öðrum þar á undan. Leiðtogar bandalagsríkjanna við Persaflóa hefðu hvatt hann til að halda aftur af sér bæði vegna þess að þau ættu í viðræðum við klerkastjórnina og að Íranar hefðu hótað þeim hefndaraðgerðum ryfu Bandaríkin og Ísrael næstum sex vikna gamalt vopnahléð. Leiðtogarnir hefðu sagt samkomulag í bígerð sem tryggði að Íranar kæmu sér ekki upp kjarnorkuvopnum, sem þeir segja aldrei hafa verið markmiðið. Trump hefur framlengt vopnahléð ótímabundið og í raun talað skýrt um að vilja hætta styrjaldarátökunum sem hafa valdið pólitískum úlfaþyt heima fyrir. Hins vegar sagðist Trump hafa skipað hernum að vera reiðubúinn til árása rynnu viðræðurnar út í sandinn. Helstu kröfur klerkastjórnarinnar eru að frystingu íranskra eigna erlendis verði hætt, langvarandi viðskiptahömlum verði aflétt og að árásarríkin greiði stríðsskaðabætur. Bandaríkin þvertaka fyrir slíkar greiðslur, segjast aðeins geta losað um fjórðung frystra eigna, krefjast þess að Íranir reki aðeins eitt kjarnorkuver og afhendi þeim birgðir sínar af auðguðu úrani sagði Fars-fréttastöðin á sunnudag.

Go to News Site