Fréttastofa RÚV
Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur tilkynnt að það framlengi á ný til þrjátíu daga sérstaka undanþágu frá banni við kaupum á rússneskri olíu. Heimildin, sem rennur út 17. júní, takmarkast þó eins og áður við kaup á olíu sem nú þegar er um borð í rússneskum skipum á hafi úti. Þeim ríkjum sem eru í hvað viðkvæmastri stöðu gefst tækifæri til að nálgast rússneska olíu, sagði fjármálaráðherrann Scott Bessent þegar hann tilkynnti um framlenginguna í færslu á samfélagsmiðlum. Hann sagði olíuna engum nýtast í tönkum skipa á siglingu. Þetta er í annað sinn sem Bandaríkin framlengja heimildina sem upphaflega var veitt í mars til að bregðast við olíuskorti vegna stríðsins gegn Íran. Líkt og áður eru einstaklingar og fyrirtæki frá Íran undanþegin, einnig frá Norður-Kóreu, Kúbu og þeim svæðum Úkraínu sem Rússar hafa hernumið. Íranar hafa lokað að stærstum hluta fyrir siglingar um Hormússund síðan í febrúarlok. Þar sigla olíuskip á friðartímum með fimmtung þeirrar olíu sem heimurinn þarfnast. Olíuverð hefur hækkað verulega síðustu mánuði. Bandarískir neytendur þurfa að greiða fimmtíu prósentum hærra verð fyrir eldsneytisgallonið núna en fyrir stríð.
Go to News Site