Collector
Víðfeðmir gróðureldar geisa nærri Los Angeles | Collector
Víðfeðmir gróðureldar geisa nærri Los Angeles
Fréttastofa RÚV

Víðfeðmir gróðureldar geisa nærri Los Angeles

Umfangsmiklir gróðureldar kviknuðu í gærmorgun nærri úthverfi í bandarísku borginni Los Angeles og breiddust hratt út. Fremur hlýtt, þurrt og hvasst er á svæðinu sem kyndir bálið. Hér má sjá afleiðingar gróðurelda í Kalíforníu í ágúst 2025.EPA / ALLISON DINNER Yfirvöld skipuðu þúsundum íbúa bæja og úthverfa borgarinnar að yfirgefa heimili sín eða búa sig undir flótta. Í gærkvöld hafði eldurinn breiðst yfir fimm og hálfs ferkílómetra svæði og eyðilagt eitt íbúðarhús. Það jafngildir stærð Kársnessins og miðbæjar Kópavogs. Engar tilkynningar hafa borist um manntjón. Borgarstjórinn Karen Bass sagði á blaðamannafundi ólíklegt að gróðureldarnir næðu til Los Angeles-borgar sjálfrar.

Go to News Site