Fréttastofa RÚV
Oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Óskalistans í Norðurþingi freista þess að mynda sjö manna meirihluta í sveitarfélaginu. Níu fulltrúar eru í sveitarstjórn í Norðurþingi og því verða aðeins fulltrúi Miðflokksins og fulltrúi Vinstri grænna í minnihlutanum verði af samstarfinu. Fundað verður í dag til að kanna hvort þeir finni flöt á hlutverkaskiptingu. „Við teljum að, þar sem það eru fjögur framboð við borðið, þá sé mikilvægt að byrja á að leysa það áður en farið verður í málefni. Ef við komum okkur saman um það tel ég í það minnsta að eftirleikurinn ætti að vera nokkuð auðveldur varðandi málefnin,“ segir Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Hún er bjartsýn á að flokkarnir nái saman um málefnin, takist að semja um hlutverkaskiptingu, þó að þeir séu ólíkir. „Jú, vissulega verður þetta aðeins flóknara þegar svona mörg framboð koma að. En ég held að það sem ég hef sjálf kynnt mér af málefnaskrá hinna framboðanna, þá erum við að horfa á sömu hluti.“ Helena segist ekki hafa rekist á neitt í málefnaskrám flokkanna í sveitarfélaginu sem hún telur að gæti orðið óyfirstíganlegur ágreiningur. „Ég held að erfiðasti kaflinn í þessu samtali með fjórum flokkum snúi að þessum hlutverkum í nefndum og ráðum. Ef við komumst í gegnum það þá eigum við að geta komist í gegnum málefnin líka, fyrir utan líka að þegar þú ert með svona stóran meirihluta - sjö manna meirihluta - þá er kannski stundum hægt að vera sammála um að vera ósammála.“
Go to News Site