Fréttastofa RÚV
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hitti ásamt öðrum norrænum forsætisráðherrum Narendra Modi forsætisráðherra Indlands á fundi í Ósló í morgun. Þetta er í þriðja sinn á átta árum sem leiðtogar Norðurlandanna og Indlands hittast á slíkum fundi. Fréttaskýrendur segja þetta merki um að á tímum þar sem Bandaríkin reka fjandsamlegri stefnu en áður með tollum og hótunum, og Kína verði sífellt meira einræðisríki horfi Norðurlöndin til Indlands sem trausts samstarfs- og viðskiptafélaga. Aukið samstarf Norðurlandanna og Indlands á ýmsum sviðum hefur reglulega verið til umræðu. Indverjar hafa til dæmis mikinn áhuga á samstarfi í grænum lausnum eins og vindmyllum og kolefnisförgun, sjóferðum og fjarskiptakerfum, meðan Norðurlöndin sjá möguleika í aðgengi að stórum markaði, stafrænni þróun og ódýrum orkulausnum. Aukið samstarf er því talið geta komið báðum til góða. Forsætisráðherra Norðurlandanna og Indlands hittast í Ósló til að ræða aukið samstarf milli landanna. Þetta er þriðji leiðtogafundur þeirra á átta árum. Samstarf við Indland er þó umdeilt vegna ýmissa mála. Barnaþrælkun er útbreidd, mismunun á sér stað milli trúarbragða og mengun er ein sú mesta í heiminum, að ógleymdu þrálátu stríði við Pakistan og Kína um Kasmír-hérað. Modi vill hins vegar kynna Indland sem framsækna þjóð sem sé tilbúin að taka stór skref, einkum í tæknimálum, með þeim sem vilja fjárfesta í landinu. Blaðamannafundur með Modi og norrænu forsætisráðherrunuma verður haldinn eftir skamma stund. Síðar í dag hittast svo forsætisráðherrar Norðurlandanna sérstaklega og þar er gert ráð fyrir að varnarmál verði í brennidepli.
Go to News Site