Collector
Farið fram á frávísun í máli Skúla Tómasar | Collector
Farið fram á frávísun í máli Skúla Tómasar
Fréttastofa RÚV

Farið fram á frávísun í máli Skúla Tómasar

Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir fór í dag fram á að máli hans yrði vísað frá dómi. Almar Möller, lögfræðingur Skúla, staðfestir þetta. Hann sagðist þó ekki vilja útskýra á hvaða grundvelli farið væri fram á frávísun í máli Skúla. Þingfesting í málinu fór fram klukkan 14:00 í dag í Héraðsdómi Reykjaness. Skúli Tómas er ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Hann er til vara ákærður fyrir manndráp af gáleysi og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Skúli Tómas var grunaður um að hafa borið ábyrgð á andláti sex sjúklinga sinna. Fimm mál voru felld niður og gefin út ákæra í einu þeirra. Skúli Tómas var til rannsóknar hjá lögreglu og héraðssaksóknara síðastliðin fimm ár vegna gruns um að hafa sett sjúklinga sína á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í lífslokameðferðir að tilefnislausu. Hann var sviptur læknaleyfi sínu tímabundið en endurheimti það og hefur síðustu ár starfað á Landspítalanum. Samkvæmt upplýsingum frá spítalanum var starfsframlag Skúla afþakkað um leið og ljóst var að hann hefði verið ákærður.

Go to News Site