Fréttastofa RÚV
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var fyrr í dag tilkynnt um að maður hefði elt unga stúlku að skólalóð í Hafnarfirði, mögulega vopnaður hnífi. Mannsins hefur verið leitað í dag og er hann enn ófundinn, að því er segir í tilkynningu. Lögreglan hefur notið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við leitina. Í tilkynningu segir að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. DV greindi frá því fyrr í dag að miðlinum hefði borist ábending um að maður hefði hlaupið á eftir stúlkum með hníf í hendi nálægt Lækjarskóla í Hafnarfirði. Þar var haft eftir aðstoðaryfirlögregluþjóni að tilkynning um atvikið hefði borist á öðrum tímanum eftir hádegi.
Go to News Site