Fréttastofa RÚV
Sævar Guðjónsson, sem rekur ferðaþjónustuna á Mjóeyri við Eskifjörð og hefur meðal annars starfað sem hreindýraleiðsögumaður, rak upp stór augu þegar hreindýrstarfur synti út í Eskifjörð í gær. Sævar telur að dýrið hafi verið á sundi í um klukkutíma, hann segist aldrei hafa séð slík sundtilþrif hjá hreindýrum. „Ég hef ekki séð þetta áður, þetta var nátturulega alveg stórmagnað að fylgjast með þessu, það er aftur á móti alveg þekkt að hreindýr syndi.“ Hreindýr eru öflug sunddýr. Feldur þeirra heldur vatni vel frá og fljóta því dýrin einstaklega vel. Sævar segir að klaufarnar virki líkt og sundfit þegar í vatnið er komið. Staðarhaldari á Mjóeyri rak upp stór augu þegar hreindýrstarfur stakk sér til sunds í Eskifirði eftir að hafa orðið fyrir styggð. Dýrið tók sér drjúgan sundsprett. Skaut skelk í bringu Tarfurinn, sem hafði verið einn á vappi ofan við Mjóeyri, stakk sér til sunds eftir að hafa skotið skelk í bringu. Dýrið sneri aftur í land þegar það hafði synt yfir hálfan fjörðinn, dýrið hafði þá verið á sundi í drjúgan tíma. Sævar segir hreindýr almennt vera nær byggð á þessum árstíma, upp til fjalla sé enn snjóþungt. „Gróðurinn er fljótastur að taka við sér svona neðarlega, hreindýrin eru neðarlega á þessum árstíma, þangað til í miðjan júlí þá líta þau á klukkuna og sjá að veiðitímabilið er að byrja og flýta sér upp til fjalla.“ Tilþrif tarfsins minna óneitanlega á hetjudáð kýrinnar Sæunnar sem árið 1987 sleit sig lausa frá slátrara og stakk sér í sjóinn í Önundarfirði á Vestfjörðum. Kýrin synti tæplega þrjá kílómetra þvert yfir fjörðinn þar sem hjón á bænum Kirkjubóli tóku á móti henni.
Go to News Site