Fréttastofa RÚV
„Ég hef miklar áhyggjur af umfangi og útbreiðsluhraða veirunnar,“ sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um ebólufaraldurinn sem nú geisar í Afríku. Óttast er að mun fleiri séu smitaðir en búið sé að staðfesta, auk þess sem stofnunin telur ljóst að faraldurinn verði ekki kveðinn niður á næstu tveimur mánuðum hið minnsta. Þessi faraldur gæti því orðið mjög skæður. Staðfest dauðsföll vegna yfirstandandi faraldurs eru 131, öll nema eitt í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó þar sem hann á upptök sín. 513 tilfelli til viðbótar eru staðfest. Útbreiðslan er slík að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lýst faraldrinum sem alþjóðlegu neyðarástandi og kallað saman neyðarfund. Stofnunin hefur þegar sent mörg tonn af hjálpargögnum, þar á meðal sótthreinsunarbúnaði og tjöldum, auk þess sem fjöldi sérfræðinga er mættur á svæðið. Þá er búið að koma upp bráðabirgðasjúkratjaldi til að annast ebólusjúklinga. Ebólutilfellum fjölgar hratt í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og tveir hafa greinst í Úganda. Áhyggjur eru af því að faraldurinn verði bæði stór og vari lengi. Það er á hinn bóginn talið ólíklegt að þessi aðstoð komi í veg fyrir útbreiðsluna. Staðfest tilfelli eru á svæðum þar sem fólk býr þétt en einangrað. Þar hafa verið stríðsátök sem hafa ekki bætt aðstæður fólksins. Þetta veldur því að fá sýni hafa verið greind og tölurnar að framan byggja mest á ætluðum tilfellum. Heilbrigðisráðherra Kongó sagði að það sem hefði komið útbreiðslunni fyrst af stað var að fólk áttaði sig ekki á því hvað var þarna á ferðinni – talaði aðeins um dularfull veikindi. Því voru margir þeirra veiku ekki fluttir á sjúkrahús strax. Að auki hefur Rauði krossinn bent á mikilvægi þess að smit séu greind snemma. Tekið skal fram að enn er staðan þó metin þannig að hættan sé eingöngu fyrir hendi í austanverðri Afríku. Talið að fjöldi tilfella sé ógreindur Fyrsta tilfellið greindist hjá hjúkrunarfræðingi sem sýndi einkenni 24. apríl. Líklegt þykir að veiran hafi breitt úr sér í nokkrar vikur áður en tilfellið uppgötvaðist. Lík konunnar var flutt til Ituri-héraðs í norðausturhluta landsins nærri landamærunum að Suður-Súdan og Úganda. Stór hluti smitanna hefur greinst þar og er hluti ástæðunnar að margir komust í snertingu við líkið í jarðarför konunnar. Í héraðinu eru miklar gullnámur sem hafa verið uppspretta þeirra átaka sem geisað hafa. Faraldurinn hefur þegar breiðst í önnur héruð og líka yfir til Úganda. Þar greindust tveir sem voru á ferð í Kongó. Annar þeirra er látinn. MRC-smitsjúkdómamiðstöðin í London segir að samkvæmt reiknilíkani þeirra sé fjöldi smita ógreindur og ekki sé hægt að útloka að yfir þúsund hafi þegar smitast. Faraldurinn sé stærri en staðfestar tölur gefi til kynna en óvíst sé hversu stór hann verði á endanum. Engin bóluefni eða lyf Ebóla er sjaldgæfur en bráðsmitandi og oft banvænn veirusjúkdómur. Hann er algengari í dýrum, til dæmis leðurblökum, en getur borist í menn sem meðhöndla eða neyta sýktra dýra. Einkennin geta verið frá 2–21 dag að koma fram. Þau byrja sem hefðbundin flensueinkenni, með hita, höfuðverk og slappleika, en síðan taka við uppköst, niðurgangur og útbrot. Líffæri eins og lifur og nýru geta svo gefið sig og stundum verða innvortis blæðingar. Sjúkdómurinn getur smitast milli manna með líkamsvökva, til dæmis blóði og munnvatni. Flestir í þessum faraldri eru smitaðir af bundibugyo-afbrigði veirunnar. Það hefur ekki sést í meira en tíu ár. Ekkert bóluefni er til gegn því og dánartíðnin af afbrigðinu er 30-50%. Engin lyf eru heldur til. Anne Ancia, fulltrúi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Kongó, segir að verið sé að skoða mögulegt bóluefni en minnst tveir mánuðir séu þangað til það verði tilbúið. „Það kemur samt að gagni því ég held að við verðum ekki búin með þennan faraldur innan tveggja mánaða,“ sagði hún. Hún bætti þó við að til skoðunar væri hvort hægt væri að nota einhver tilraunabóluefni til að berjast gegn faraldrinum. Bandaríkjastjórn hefur þegar hvatt borgara sína til að ferðast ekki til Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó, Suður-Súdan og Úganda og endurskoða ferðir til Rúanda. Einn hinna smituðu er bandarískur læknir og er hann nú í meðferð á sjúkrahúsi í Þýskalandi. Smitsjúkdómastofnun Bandaríkjanna segir að til standi að flytja á brott sex aðra Bandaríkjamenn sem hætt er við að hafi komist í snertingu við veiruna. Ebólufaraldur er ekki nýr af nálinni, hvorki í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó né annars staðar í Afríku. Í síðasta faraldri í Kongó, sem stóð á árunum 2018-2020, létust hátt í 2.300 manns og 1.200 til viðbótar veiktust. Þessi faraldur er sá 17. sem skráður er í landinu.
Go to News Site