Fréttastofa RÚV
Bournemouth komst yfir með marki Eli Junior Kroupi á 39. mínútu og 1-0 stóð þar til á 5. mínútu uppbótartíma. Þá jafnaði Erling Haaland metin en það dugði ekki til. Arsenal er með 82 stig á móti 78 hjá City og því er Arsenal meistari heima í sófa. Fyrsti titillinn síðan hinir ósigrandi riðu um héröð Þetta er 14. Englandsmeistaratitill Arsenal og sá fyrsti síðan 2004. Þá tapaði Arsenal ekki leik, sem er afrek sem ekkert lið hefur leikið eftir. Lið Arsenal á þeim tíma hefur fengið gælunafnið The Invincibles , eða hinir ósigrandi. Biðin hefur tekið verulega á taugar stuðningsmanna Arsenalliðsins en Arsenal hefur orðið í 2. sæti deildarinnar undanfarin þrjú ár og fimm sinnum síðan titillinn vannst síðast. Leiktíðinni er hvergi nærri lokið hjá Arsenal. Reikna má með miklum fögnuði þegar liðið mætir Crystal Palace í lokaumferðinni á sunnudaginn. Þá fær liðið meistarabikarinn afhentan. Svo mætir Arsenal franska liðinu PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Búdapest 30. maí. Meistaradeildina hefur Arsenal aldrei unnið.
Go to News Site