Fréttastofa RÚV
Göngufótbolti er ný íþróttagrein sem er nú verið að kynna víða um land en enginn markvörður er í fótboltanum. Bannað er að hlaupa og stranglega bannað er að tækla og tudda andstæðinginn. Rúnar Már Sverrisson, þjálfari hjá Þrótti í Reykjavík, sem á líka sæti í grasrótarnefnd Knattspyrnusambands Íslands, er nú á ferð um landið til að kynna nýju íþróttagreinina, sem er víða mjög vinsæl í nágrannalöndunum. Hann segir göngubolta markvissa heilsueflingu fyrir þá sem vilja ekki keppa til að forðast félagslega einangrun. Gönguboltinn sé líka upplagður fyrir stjórnmálamenn, aldraða og fatlaða svo einhver dæmi séu nefnd. „Þú mátt ekki lyfta báðum fótum samtímis, það er skilgreiningin. Síðan máttu ekki tudda og jafnvel fagna mörkum andstæðinganna, það er hluti af því, þetta er svona samfélagsfyrirbrigði. Þessi fótbolti er fyrir alla,” segir Rúnar Már. Rúnar segir að gönguboltinn sér mjög félagslegur og passi fjölbreyttum hópi fólks, konum og körlum. „Ef þú hefur gaman af því að hitta nýtt fólk og leika þér í léttum hópfótbolta er ekkert nema fjör, það er þannig. Það er enginn markmaður af því að við viljum að allir hreyfi sig, ekki bara að einhver standi fyrir aftan,” segir Rúnar Már. Dagana 18. til 20. júní verður haldið göngufótboltamót í Laugardal í Reykjavík. Rakel Magnúsdóttir, sem býr í Hveragerði og er svæðisfulltrúi íþróttahéraða á Suðurlandi, segir göngufótbolta frábæran. Hún var að prófa hann í fyrsta skipti. „Þetta er ógeðslega skemmtilegt, ég er hræðileg í fótbolta en ég skoraði samt með vinstri, sástu það? Já, þessi bolti er æði og myndi henta svo mikið fyrir fólk sem er ekkert tilbúið í svona ofboðslega hörku, eins og ég sagði, að misþyrma sjálfu sér og öðrum heldur bara að hafa gaman,” segir Rakel. Göngufótbolti er ný íþróttagrein sem verið er að kynna víða um land. Þar er eðli málsins samkvæmt bannað að hlaupa, bannað að tudda og þá má enginn vera í markinu.
Go to News Site