Collector
Byggja upp innviði fyrir gervigreind með fimm sinnum meira rafmagni | Collector
Byggja upp innviði fyrir gervigreind með fimm sinnum meira rafmagni
Fréttastofa RÚV

Byggja upp innviði fyrir gervigreind með fimm sinnum meira rafmagni

Gagnaver Verne á Ásbrú fær fimm sinnum meira rafmagn með nýju tengivirki. Framkvæmdastjóri segir þetta lið í uppbyggingu vegna gervigreindar. Tengivirkið er það stærsta i einkaeigu á landinu. Hlutverk tengivirkis er að setja rafmagn inn á flutningskerfi raforku eða taka það þaðan út. Gagnaver Verne á Ásbrú fær fimm sinnum meira rafmagn en áður, með nýju tengivirki sem tekið var í notkun í dag. Bæjarstjórinn segir líklegt að gagnaverum þar fjölgi. Það breytir líka spennu rafmagnsins og stýrir flæði þess. Og tengivirki gagnavers Verne og Landsnets, sem var tekið í notkun með viðhöfn í dag, er engin smásmíði. Úr 45 megavöttum í 240 „Við erum að fara úr núverandi tengivirki sem er upp á 45 megavött yfir í þetta nýja tengivirki sem hefur hámarksafkastagetu upp á 240 megavött,“ segir Styrmir Hafliðason framkvæmdastjóri Verne Með þessari viðbót er hægt að byggja upp innviði fyrir gervigreind - en meiri notkun hennar hefur aukið eftirspurn eftir þjónustu gagnavera. „Það má segja að þetta tengivirki sem við erum að taka í notkun í dag er hluti af því að undirbúa okkur undir það sem koma skal,“ segir Styrmir. Uppruni orkunnar skiptir máli Gagnaver Verne er á Ásbrú í fjórum byggingum, sem samtals eru 35 þúsund fermetrar. Meðal viðskiptavina eru alþjóðleg fjármálafyrirtæki, ýmis stórfyrirtæki á borð við BMW og margir þeirra setja græna, eða sjálfbæra orku sem skilyrði. „Það er farið að skipta æ meira máli í ákvörðun fyrirtækja sem eru að velja sér hvaða staðsetningu fyrir sína gervigreindarinnviði,“ segir Styrmir. Gæti orðið gagnaversgarður Um 50 starfa hjá Verne, auk hátt í 200 verktaka. Með nýja tengivirkinu er viðbúið að þeim fjölgi og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ fagnar því. „Þetta skiptir miklu máli fyrir sveitarfélagið og atvinnulífið á Suðurnesjum að gagnaversiðnaðurinn geti þróast áfram og fleiri gagnaver hugsanlega komið.“ Gæti Reykjanesbær orðið einhverskonar gagnaversgarður Íslands? „Það kæmi vel til greina þegar Suðurnesjalína 2 er komin í gagnið og við höfum næga orku fyrir þessi fyrirtæki,“ segir Kjartan Már.

Go to News Site