Fréttastofa RÚV
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir afar ólíklegt að rafbyssa, sem lögregla beitti á mann sem hafði hellt yfir sig bensíni, hafi orðið til þess að það kviknaði í honum. „Við getum ekki séð það það sé svoleiðis. Drægnin var ekki með þeim hætti að við teljum það mögulegt. Svo vil ég líka bæta við að rafvarnarvopni er að sjálfsögðu aldrei beitt nema meðalhófs sé gætt og að það sé talið vera aðstæðunum fyrir bestu,“ segir Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum. Maðurinn, sem lögregla hafði afskipti af í gær, var fluttur á Landspítala töluvert brenndur um allan líkamann. Sjónarvotti, sem tekið hafði atvikið upp á síma sinn, var gert að eyða myndefninu. Gunnar Ingi Jóhannsson hæstaréttarlögmaður sagðist í hádegisfréttum telja að með því hefði lögregla farið út fyrir sínar valdheimildir. Margrét telur fyrirmælin réttlætanleg í ljósi aðstæðna. „Drægnin var ekki með þeim hætti að við teljum það mögulegt,“ segir Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum. Lögregla beitti rafbyssu í gær við afskipti af manni sem talinn er hafa borið að sér eld. „Það voru gefin fyrirmæli á vettvangi. Þau voru gefin til að vernda einstaklinginn og hans friðhelgi sem aðgerðin beindist að. Það var ekki gert til að verja störf lögreglu enda eru þau skráð og eru til á myndbandi úr fjölda búkmyndavéla og enn fremur á rafvarnarvopninu sjálfu,“ segir hún. Málinu hefur verið vísað til nefndar um eftirlit með lögreglu, sem fær öll gögnin. „Við bíðum bara eftir þeirri skoðun,“ segir Margrét Kristín sem segir lögregluna ekki yfir gagnrýni hafna. Hluti af þjálfun að meta aðstæður Frá því að lögregla hóf að nota rafbyssur í september 2024 og til ársloka 2025 var rafbyssu beitt 11 sinnum. Mun oftar voru þær dregnar úr slíðri til að ógna, en ekki beitt, eða 100 sinnum. Til þess að lögreglumaður megi beita rafbyssu þarf hann að ljúka tveggja daga námskeiði, bóklegu og verklegu. Birna Blöndal Sveinsdóttir, lögreglufulltrúi hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu, segir að taka þurfi tillit til ýmissa þátta þegar rafbyssu er beitt, meta þurfi stöðuna hverju sinni. „Þetta eru sekúndubrot sem lögreglumenn hafa til þess að taka ákvörðun,“ segir Birna. Þjálfunin snúist að sumu leyti um þessa ákvarðanatöku. Þar sé einnig farið yfir atriði sem varast þurfi þegar rafbyssur eru notaðar. „Þarna kemur það líka inn á það að lögreglumenn þurfa að vega og meta aðstæður hverju sinni. Maður sem er búinn að hella yfir sig eldfimum vökva getur verið mjög hættulegur lögreglumanni, sérstaklega ef hann er með eitthvert tæki í höndunum til þess að kveikja í sér bál, þannig það er líka eitthvað sem lögreglumenn verða að hafa í huga.“ Birna segir að í slíkum aðstæðum séu valdbeitingartæki sem geri lögreglumönnum kleift að halda fjarlægð jafnvel hentugri en önnur.
Go to News Site