Collector
Fyrsta tap eyjakvenna og Blikar einir á toppnum | Collector
Fyrsta tap eyjakvenna og Blikar einir á toppnum
Fréttastofa RÚV

Fyrsta tap eyjakvenna og Blikar einir á toppnum

Breiðablik vann 3-1 útisigur á Þór/KA í kvöld og hefur Kópavogsliðið enn fullt hús stiga eftir fimm umferðir eða 15 stig. ÍBV tapaði svo sínum fyrstu stigum í sumar þegar FH vann sannfærandi 3-0 sigur á eyjaliðinu en ÍBV er þar með í 2. sæti Bestu deildarinnar með 12 stig. FH kemur svo í 3. sæti með 10 stig. Úrslit kvöldsins FH-ÍBV, 3-0 Mörk FH: Birna Kristín Björnsdóttir '11 Ída Marín Hermannsdóttir '71 , vítaspyrna Helena Maree Errington '83 Þór/KA-Breiðablik, 1-3 Mörk Breiðabliks: Agla María Albertsdóttir '54 , víti Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir '67 Edith Kristín Kristjánsdóttir '69 Mark Þórs/KA: Hulda Ósk Jónsdóttir '93 Grindavík/Njarðvík-Stjarnan, 1-1 Mark Grindavíkur/Njarðvíkur: Lily Anna Farkas '10 Mark Stjörnunnar: Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir '91 Valur-Fram, 0-0 Víkingur-Þróttur, 1-4 Mark Víkings: Jasmín Erla Ingadóttir '35 Mörk Þróttar: Sigríður Theód. Guðmundsdóttir '30 Sigríður Theód. Guðmundsdóttir '54 Brynja Rán Knudsen '80 Þórdís Nanna Ágústsdóttir '94 Upplýsingar um alla markaskorara eru fengnar frá fotbolta.net .

Go to News Site