Collector
Fengu þrjú útköll á þremur tímum | Collector
Fengu þrjú útköll á þremur tímum
Fréttastofa RÚV

Fengu þrjú útköll á þremur tímum

Dælubíll Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Eldur kviknaði í ruslatunnu við Vífilstaðartún í kvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk útkall um klukkan 21:30 og sendi dælubíl á vettvang. Ruslatunnan stóð nærri skýli, en eldurinn hafði þó ekki náð að læsa sig í klæðninguna, samkvæmt varðstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Skömmu seinna barst tilkynning um lítinn sinubruna á göngustíg norðanmegin við Þróttaraheimilið. Einn dælubíll var sendur á vettvang og slökkviliðsmenn náðu fljótt að slökkva sinubrunann. Þá óskaði eigandi bifreiðar í Þönglabakka eftir aðstoð slökkviliðs vegna olíu sem lak frá bíl hans. Dælubíll var sendur á vettvang til að hreinsa upp olíuna.

Go to News Site