Collector
Bandaríkjastjórn ákærir Raúl Castro fyrir morð | Collector
Bandaríkjastjórn ákærir Raúl Castro fyrir morð
Fréttastofa RÚV

Bandaríkjastjórn ákærir Raúl Castro fyrir morð

Bandaríkjastjórn hefur ákært Raúl Castro, fyrrum forseta Kúbu, fyrir morð, samsæri um að myrða Bandaríkjamenn og eyðileggingu flugvéla. Ákærurnar eru tilkomnar vegna tveggja flugvéla sem voru skotnar niður milli Kúbu og Flórída árið 1996, þegar Castro var yfirmaður hersins. Flugvélarnar tilheyrðu kúbansk-bandaríska hópnum Bræður til bjargar , sem voru andsnúnir stjórnvöldum. Fjórir voru drepnir í árás kúbanska hersins á flugvélarnar, þar af voru þrír Bandaríkjamenn. Todd Blanche ríkissaksóknari greindi frá ákærunum á blaðamannafundi á Miami á Flórída í gær. Hann sagði að Bandaríkjastjórn gerði ráð fyrir því að Castro kæmi til Bandaríkjanna að eigin frumkvæði – eða með öðrum hætti – til að fara í fangelsi. Castro er 94 ára gamall og yngri bróðir Fídels Castro sem leiddi byltingu kommúnista á Kúbu 1959. Þessar ákærur á hendur Castro hafa ýtt undir vangaveltur um að Donald Trump Bandaríkjaforseti ætli sér að reyna að steypa kommúnistastjórn Kúbu af stóli. Hann fagnaði ákærunni og segir hana marka tímamót. Hann vildi þó ekki meina að Bandaríkin væru að gera atlögu að Kúbu eða það yrði stigmögnun. Hann sagði að þess gerðist ekki þörf því landið væri að hruni komið og stjórnvöld væru á vissan hátt búin að missa tökin. Forseti Kúbu, Miguel Diaz-Canel, sagði í færslu á X að ákærurnar væru tilhæfulausar og einungis til þess fallnar að réttlæta hernaðaraðgerðir gegn Kúbu. Stjórnvöld á Kúbu sendu frá sér tilkynningu þar sem segir að árásirnar á flugvélarnar hafi verið réttmæt sjálfsvörn gegn broti á lofthelgi. Auk Castros voru fimm aðrir Kúbverjar ákærðir fyrir að hafa skotið á flugvélarnar, þar með taldir flugmennirnir sem skutu niður flugvélarnar.

Go to News Site