Fréttastofa RÚV
Á sýningu Fatahönnunarfélags Íslands á Hönnunarmars var rakin saga íslenskrar fatahönnunar frá aldamótum til ársins 2015. Félagið var stofnað 2001. Ragna Sigríður Bjarnadóttir, varaformaður félagsins, segir að það sé mikið grúsk á bak við sýninguna. „Eins og að fara í gegnum tímarit.is og sjá hvað er til af heimildum um íslenska fatahönnun því það er í raun bara mjög lítið til um fagið.“ Straumhvörf urðu í íslenskri fatahönnun í lok tíunda áratugarins og í upphafi þessarar aldar og má segja að fatahönnun hafi þá fyrst verið viðurkennd sem fag hér á landi. Kennsla hófst í greininni í Listaháskóla Íslands og starfsheitið hönnuður varð til.
Go to News Site