Fréttastofa RÚV
Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, er sá sem flestir strikuðu yfir í bæjarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ. 42 strikuðu hann út eða breyttu röðun. Það er rétt rúmlega eitt prósent af kjósendum Sjálfstæðisflokksins. 23 strikuðu yfir nafn Margrétar Þórarinsdóttur sem skipaði annað sæti listans. Tólf strikuðu yfir nafn Rúnars Fossádal Árnasonar, sem skipaði annað sæti á lista Samfylkingarinnar, það er um eitt prósent kjósenda flokksins. Fjórtán strikuðu eða færðu til Birgi Má Bragason sem skipaði fjórða sæti á lista Framsóknar, rúmlega hálft prósent kjósenda flokksins. Vilhjálmur Árnason.RÚV / Ragnar Visage
Go to News Site