Collector
„NATO lifir ekki án Bandaríkjanna“ segir Jens Stoltenberg | Collector
„NATO lifir ekki án Bandaríkjanna“ segir Jens Stoltenberg
Fréttastofa RÚV

„NATO lifir ekki án Bandaríkjanna“ segir Jens Stoltenberg

Í gærkvöld var á dagskrá allra ríkissjónvarpsstöðva Norðurlanda, nema RÚV, þáttur um varnar- og öryggismál . Þarna voru meðal annarra Jens Stoltenberg, fjármálaráðherra Noregs og fyrrverandi framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Anders Adlercreutz, ráðherra norrænnar samvinnu í Finnlandi, og fleiri ráðamenn og sérfræðingar. NATO lifir ekki óbreytt án Bandaríkjanna Jens Stoltenberg sagði meðal annars að NATO væri bandalag þjóða beggja megin Atlantshafsins og það gæti ekki haldið áfram óbreytt nema Bandaríkin væru áfram með. Hann sagði einnig að engin bein hernaðarleg ógn stafaði að Norðurlöndum en það væri stöðug ógn af skemmdarverkum og fjölþáttaárásum. Stoltenberg sagði einnig að Evrópusambandið gæti ekki tekið við öryggishlutverki NATO. Fyrsti NATO fundurinn í Svíþjóð Utanríkisráðherrar NATO hittast í Helsingjaborg í dag þar sem leiðtogafundur bandalagsins í júlí verður undirbúinn. Búist er við að talsvert verði rætt um fyrirhugaða fækkun í herliði Bandaríkjanna í Evrópu. Í vikunni var tilkynnt um enn frekari fækkun, en fyrr í maímánuði sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að fækka ætti bandarískum hermönnum í Þýskalandi um fimm þúsund. Sú yfirlýsing kom í kjölfar þess að Friedrich Merz Þýskalandskanslari gagnrýndi stjórnvöld í Washington þar sem hann sagði að það hefði verið illa ígrunduð ákvörðun að ráðast á Íran og Donald Trump hefði ekki nein plön. Á leiðtogafundinum í júlí gæti gneistað á milli því Trump hefur verið harðorður um bandalagsþjóðirnar í NATO fyrir að hafa ekki komið Bandaríkjaher til hjálpar í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Rutte telur fækkun ekki veikja varnarmáttinn Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, segir að færri bandarískir hermenn í Evrópu veiki ekki varnir álfunnar og bandalagið verði áfram beggja vegna Atlantshafs en Evrópuríki verði að axla stærri hluta ábyrgðarinnar á vörnum álfunnar. Rutte sagði að áætlanir Bandaríkjamanna hefðu í mörg ár lagt meiri áherslu á ógnir og áskoranir annars staðar í heiminum en í Evrópu til dæmis til Asíu. Líklega verður Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, spurður um þessa fækkun í herliði Bandaríkjanna í Evrópu á utanríkisráðherrafundinum í Helsingjaborg. Svíar efla flota sinn Svíar ætla að kaupa fjórar freigátur af franska hergagnaframleiðandanum Naval. Það verða mestu vopnakaup Svía frá því að þeir keyptu Gripen-herþotur á níunda áratug síðustu aldar. Núverandi floti Svía er hugsaður til varna í Eystrasaltinu en nýju freigáturnar geta tekið þátt í NATO verkefnum. Michael Claesson, yfirmaður sænska heraflans, segir það mikilvægt að Svíar láti ekki sitt eftir liggja innan NATO. Miklu stærri herskip en Svíar eiga nú Þetta eru miklu stærri skip en núverandi Visby og Gävle-klassa korvettur sænska flotans. Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svía, segir að frönsku freigáturnar séu sérútbúnar með loftvarnarkerfum og geti varist langdrægum eldflaugum og að með freigátunum þrefaldist loftvarnageta Svía frá því sem nú er. Ulf Kristersson forsætisráðherra sagði þegar kaupin voru kynnt fyrr í vikunni að ákvörðunin segði sitt um mikilvægi sjóhersins og hvernig stjórnvöld ætli öryggi allra Svía á erfiðum tímum. Erfið stjórnarmyndun í Danmörku Það eru liðnir 57 dagar frá kosningum í Danmörku og það hefur aldrei liðið svo langur tími frá kosningum þar til stjórn hefur verið mynduð. Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hefur í vikunni reynt að mynda þriggja flokka minnihlutastjórn með flokkum í bláu blokkinni, Íhaldsflokknum og Liberal Alliance. Aðrir flokkar á hægri vængnum hafa lýst vilja til að verja slíka stjórn vantrausti en Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne, hefur ekki samþykkt að styðja slíka stjórn og sagt hann hugmyndina andvana fædda. Umboð Troels Lund Poulsens til stjórnarmyndunar rennur út um helgina. Poulsen sagði við fjölmiðla í fyrradag að minnihlutastjórn undir forystu sinni væri besta leiðin til stjórnarmyndunar. Vandræðin eru að samtals hafa þessir flokkar bara 44 þingmenn en það þarf 90 til að styðja stjórnina og verja hana falli. Troels Lund Poulsen þyrfti því stuðning Lars Løkkes Rasmussens og flokks hans, Moderaterne. Hnútukast á milli Poulsens og Lars Løkkes Poulsen skaut á Lars Løkke með því að segja að tími væri kominn til að velja pólitísk stefnumál fram yfir einstaklinga og gaf þannig í skyn að þó að stefna nýrrar stjórnar myndi verða mjög í anda stefnu Moderaterne vildi Lars Løkke ekki vera með því hann fengi ekki ráðherraembætti. Lars Løkke svaraði með því að segja að hann væri sammála því að Venstre hefði kúvent í mörgum málum sem þau hefðu lagt áherslu á í kosningabaráttunni, til dæmis að skera niður útgjöld til þróunaraðstoðar um 28 prósent, nú ætti ekki að skera, það ætti ekki að snúa baki við Mannréttindasáttmála Evrópu. Það hugnaðist sér og það væru margir jákvæðir hlutir í stefnugrundvelli Poulsens og hann þekkti þá úr eigin stefnuskrá en ríkisstjórn snerist um meira en það. Líklegast að Mette Frederiksen fái aftur umboðið Það var því ekki að heyra að Lars Løkke væri þess fýsandi að taka þátt í hægristjórn og það eru ekki margir í Danmörku sem hafa trú á að Troels Lund Poulsen takist að mynda minnihlutastjórn. Christina Cordsen, stjórnmálaskýrandi Danmarks Radio, sagði að líklegast væri, með öllum mögulegum fyrirvörum, að þetta endaði með mið-vinstri stjórn Jafnaðarmanna, Sósíalíska þjóðarflokksins, Moderaterne og Radikale sem reynt hefði verið að mynda áður en Troels Lund Poulsen fékk konunglegt umboð til stjórnarmyndunar. Enginn aufúsugestur á Grænlandi Heimsókn Jeff Landry, ríkisstjóra í Lousiana, sem er sérlegur sendimaður Bandaríkjaforseta, heppnaðist ekki sérstaklega vel. Hann kom óboðinn til Grænlands en fékk að hitta Jens-Frederik Nielsen, formann landsstjórnar Grænlands, og Múte B. Egede, utanríkisráðherra. Þeir leyfðu fjölmiðlum ekki að taka myndir en gerðu grein fyrir hvað þeir hefðu tjáð Landry eftir fundinn. Þeir segja að þeir ætli ekki að fara hefja samningaviðræður við hann, það sé þegar í gangi ferli á stjórna Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um samskipti ríkjanna og kröfur Trumps um yfirráð. Landry segir að Grænlendingar geti þakkað Trump áhuga heimsins á landinu. Í föruneyti Landrys var bandarískur læknir, Joseph Griffin, sem ætlaði að kynna sér heilbrigðismál . Hann fékk sömuleiðis kuldalegar móttöku r, Grænlendingar segja að þeir hafi ekkert að læra af Bandaríkjunum í heilsugæslumálum. Aukin bjartsýni í Úkraínu Það hafa staðið harðir bardagar og miklar drónaárásir í árásarstríði Rússa gegn Úkraínu en það ríkir aukin bjartsýni meðal Úkraínumanna, kannski með hækkandi sól, kannski vegna betra gengis á vígvellinum. Bengt Norberg, fréttamaður sænska ríkissjónvarpsins, ræddi við Oleksöndru Matviychuk, sem er formaður mannréttindasamtakanna Center for Civil liberties sem fengu friðarverðlaun Nóbels 2022. Hún segir að Úkraínumönnum finnist að átökin og þróun stríðsins hafi breyst Úkraínmönnum í hag. Bengt Norberg segir að þessi tilfinning Úkraínumanna sé byggð á staðreyndum, Úkraínumenn vinni meira land en Rússar, drónatækni Úkraínu minnki manntjón og geri Rússum afar erfitt fyrir, bæði á víglínunni og langt inn í Rússland. „Úkraína getur unnið stríðið“ Í hlaðvarpinu The World sem SKY-fréttamennirnir Richard Engel og Yalda Hakim sjá um var rætt við Phillips O'Brien, sem er prófessor við St. Andrews-háskólann í Skotlandi. Hann er varnarmálasérfræðingur og forstöðumaður utanríkismálastofnunar háskólans. Hann tekur undir að hlutirnir hafi breyst frá því í fyrra, þá hafi virst að Rússar hefðu yfirhöndina. Það sem væri breytt væri að á mörgum sviðum hefðu Úkraínumenn núna frumkvæðið og þeim gengi nú betur heldur en í fyrra. O'Brien segir líka að það sé rangt að Úkraína geti ekki unnið stríðið. Hann bendir á að mannfall Rússa sé gríðarmikið, þeir hafi misst yfir 30 þúsund hermenn í mars og apríl, Úkraína vegi hart að efnahag Rússlands með árásum á olíuútflutning þeirra og drónaárás á Moskvu hafi haft mikil sálræn áhrif, íbúar borgarinnar hafi hingað til talið að þeir væru óhultir enda væri borgin með fleiri loftvarnarkerfi en nokkur önnur í heiminum. Svo sagði hann að Úkraínumenn óskuðu enn hjálpar, það væri hægt að sigra rússneska herinn og rússneska ríkið væri ekkert alltof sterkt. Fóru bónleiðir til búðar Donald Trump og Vladimír Pútín hafa verið í heimsókn hjá Xi Jiping, forseta Kína, undanfarna daga. Trump vildi fá Xi Jinping til að hafa áhrif á Írani og beita sér í stríðinu við Persaflóa, Pútín vildi fá samning um gasleiðslu frá Rússlandi til Kína, en það var ekki gengið frá neinum slíkum samningum. Í yfirlýsingu eftir fundinn var talað um náin tengsl og aukið samstarf en ekkert handfast var nefnt svo það virðist sem engar meiriháttar ákvarðanir hafa verið teknar. Bæði Trump og Pútín virðast því hafa farið bónleiðir til búðar. Rússar hafa veikst, Kínverjar styrkst Frá því að Pútín kom fyrst í heimsókn til Kína sem forseti um aldamótin hefur orðið umtalsverð breyting á sambandi Rússlands og Kína, Rússland hefur veikst og Kína er klárlega orðið annað mesta efnahags- og hernaðarveldi heimsins. Rússar þurfa miklu meira á Kínverjum að halda en öfugt. Kínverjar segjast vera hlutlausir í árásarstríði Rússa í Úkraínu. Í raun er hæpið að Rússar gætu haldið stríðinu áfram ef Kínverjar lokuðu á samskipti og viðskipti eins og vestræn ríki hafa gert. Hér má heyra Heimsglugga vikunnar Norræn öryggismál voru til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1, utanríkisráðherrafundur NATO, freigátukaup Svía, stjórnarmyndun í Danmörku, aukin bjartsýni Úkraínumanna, heimsókn útsendara Trumps til Grænlands og heimsóknir til Kína.

Go to News Site