Collector
Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu í Landsrétti öðru sinni | Collector
Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu í Landsrétti öðru sinni
Fréttastofa RÚV

Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu í Landsrétti öðru sinni

Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu fer fram í Landsrétti í dag, öðru sinni. Landsréttur sýknaði í fyrra þá Sindra Snæ Birgisson og Ísidór Nathansson af tilraun til hryðjuverks og aðild að tilraun til hryðjuverks, en sakfelldi þá fyrir brot á vopnalögum. Hæstiréttur taldi verulega annmarka á dómi Landsréttar og gerði honum að taka málið fyrir aftur. Skýrslur voru teknar af báðum ákærðu við upphaf aðalmeðferðar í morgun. Eðli málsins samkvæmt var ekki margt sem átti eftir að fara yfir, því þeir gáfu báðir ítarlega skýrslu fyrir héraðsdómi og svo Landsrétti í fyrri aðalmeðferð. Í skýrslutökum fyrir Landsrétti í dag voru Sindri og Ísidór spurðir út í nokkra þætti ákærunnar, aðallega um samskipti sín á milli. Í flestum tilvikum kváðust þeir ekki muna vel eftir samskiptunum, enda væri liðinn langur tími. Dómari spurði Sindra meðal annars um samtal þeirra um natríumhýdroxíð, sem nefnist öðru nafni vítissódi. Sindri sagði að hann rámaði í að hafa verið að rannsaka efnið í tengslum við sýruárás sem gerð hafði verið í Bretlandi. Dómari spurði hann út í skilaboð í samtalinu þar sem Sindri sagði „reddað“. Sindri sagðist hafa séð efnið til sölu hjá Olís en hann hefði aldrei farið að versla það. Dómari spurði hann út í skilaboð í samtalinu þar sem hann sagði „þau munu fá það á trýnið“. Sindri sagðist hafa verið að vitna í þátt Sannra íslenskra sakamála um Vatnsberann, og þetta hafi verið lélegt grín. Svör í skýrslutöku hafi litast af aðstæðum og ekki verið rétt Dómari spurði Ísidór um atriði sem fram kom í skýrslutöku lögreglu yfir honum þar sem hann lýsti því að hann hefði áhyggjur af því að Sindri væri kominn lengra í þeim hugsunum sem þeir ræddu í samtölum sínum og spurður, í skýrslutöku hjá lögreglu, hvort hann teldi að Sindri ætlaði að framkvæma eitthvað í tengslum við samtal sem þeir áttu um dróna, sagði hann að einhverju leyti já. Sakborningar í hryðjuverkamálinu gáfu skýrslu fyrir Landsrétti í dag. Þar fer aðalmeðferð fram öðru sinni eftir að Hæstiréttur gerði dómnum að taka málið fyrir aftur. Ísidór sagði dómara í Landsrétti í dag að svör hans hefðu litast af aðstæðum, það hafi myndast meiri alvarleiki við handtökurnar og hann hafi sætt einangrun dögum saman. Niðurstöðurnar hafi því að einhverju leyti verið þvingaðar. Hann sagðist á engum tímapunkti, fyrir handtökurnar, hafa haldið að Sindri væri að fara að framkvæma það sem þeir ræddu.

Go to News Site