Collector
Sveindís með í leiknum mikilvæga gegn Úkraínu | Collector
Sveindís með í leiknum mikilvæga gegn Úkraínu
Fréttastofa RÚV

Sveindís með í leiknum mikilvæga gegn Úkraínu

Sveindís Jane Jónsdóttir verður með í leikjum kvennalandsliðsins í fótbolta gegn Úkraínu og Spáni. Sveindís hefur ekki verið með liði sínu Angel City í Bandaríkjunum í síðustu leikjum vegna meiðsla. Ísland mætir Úkraínu í Mielec í Póllandi föstudaginn 5. júní og Spáni á Laugardalsvelli þriðjudaginn 9. júní. Engar breytingar eru frá síðasta hóp og heldur Þorsteinn Halldórsson því tryggð við stelpurnar sem unnu Úkraínu og voru nálægt því að ná úrslitum gegn Englandi í síðasta glugga. Fram undan eru lokaleikirnir í undankeppni HM 2027 sem fer fram í Brasilíu. Ísland má ekki tapa gegn Úkraínu og tapa stórt gegn Spáni, en liðin eru í baráttu í 3. og 4. sæti riðilsins. Úkraína er í fallsæti sem stendur. Efsta liðið í riðlinum fer beint á HM en hin þrjú liðin fara í umspil. Umspilsleiðin er þó mun meiri fjallabaksleið fyrir það lið sem endar í 4. sæti. Þá fellur það, sem fyrr segir, í B-deild Þjóðadeildar. Ísland er þó með Staðan í riðlinum England - 12 stig - plús 9 í markatölu Spánn - 9 stig - plús 9 í markatölu Ísland - 3 stig - mínus 5 í markatölu Úkraína - 0 stig - mínus 13 í markatölu

Go to News Site