Fréttastofa RÚV
Magdeburg gerði jafntefli við Flensburg í toppslag í kvöld, 30-30. Fyrir leikinn var Flensburg eina liðið sem gat náð toppliði Magdeburgar að stigum en eftir úrslit kvöldsins er ljóst að Magdeburg hefur sjö stiga forskot á Flensburg þegar þrjár umferðir eru eftir og þýski meistaratitillinn er því í höfn hjá Magdeburg. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Magdeburgarliðið í kvöld og þeir Elvar Örn Jónsson og Ómar Ingi Magnússon þrjú hvor. Gísli og Ómar urðu einnig þýskir meistarar árin 2022 og 2024 með Magdeburg en Elvar Örn Jónsson er nú þýskur meistari í fyrsta sinn.
Go to News Site