Collector
Kakkalakkinn tákngervingur óánægju ungmenna | Collector
Kakkalakkinn tákngervingur óánægju ungmenna
Fréttastofa RÚV

Kakkalakkinn tákngervingur óánægju ungmenna

Kakkalakkaflokkurinn Janta hefur nýlega slegið í gegn á samfélagsmiðlinum Instagram. Aðgangurinn bætti við sig rúmlega 19 milljón fylgjendum á miðlinum á innan við viku sem er næstum tvöfaldur fjöldi fylgjenda ríkisstjórnarinnar. Nafn flokksins er bjögun á nafni ríkisstjórnarflokksins Bharatiya Janata sem hefur reynt að stöðva útbreiðslu kakkalakkaflokksins á samfélagsmiðlum. Janta er þó ekki raunverulegur stjórnmálaflokkur. Ummæli dómarans hófu bylgjuna Uppátækið á rætur sínar að rekja til ummæla Surya Kant, forseta hæstaréttar Indlands. Hann sagði í dómsal fyrr í mánuðinum að sum ungmenni væru eins og kakkalakkar — ófær um að verða sér úti um vinnu. Þrátt fyrir að skýra síðar að hann hefði átt við fólk sem nýtti sér falsaðar gráður til að fá störf í tilteknum starfsgreinum vöktu ummælin hörð viðbrögð, einkum á netinu. Atvinnuleysi er viðvarandi vandamál meðal ungs fólks á Indlandi og það brást við ummælum Kants með því að upphefja kakkalakkann. Gervigreindarmyndir af dýrinu hafa farið í mikla dreifingu á indverskum samfélagsmiðlum, fréttamiðlum og dagblöðum. Þrátt fyrir vinsældir kakkalakkaflokksins á samfélagsmiðlum nýtur ríkisstjórnarflokkurinn Bharatiya Janata, með forsætisráðherrann Narendra Modi við stjórnvölinn, enn mikils fylgis. Hann hefur þó verið gagnrýndur fyrir að bæla niður borgaraleg réttindi, setja hagsmuni hindúista framar öðrum og kynda undir trúardeilum. Flokkurinn vísar gagnrýninni á bug. Í andstöðu sinni tekur Kakkalakkaflokkurinn fram á skráningarformi sínu að hann líti ekki til trúarbragða, þjóðfélagsstéttar eða kyns meðlima sinna.

Go to News Site