Collector
Um 40.000 manns þurftu að yfirgefa heimili sín vegna eiturefnaleka í Orange-sýslu | Collector
Um 40.000 manns þurftu að yfirgefa heimili sín vegna eiturefnaleka í Orange-sýslu
Fréttastofa RÚV

Um 40.000 manns þurftu að yfirgefa heimili sín vegna eiturefnaleka í Orange-sýslu

Vatni var sprautað á tankinn til að koma í veg fyrir ofhitnun efnisins.AP/The Orange County Register / Jeff Gritchen Um fjörutíu þúsund íbúum í Garden Grove í Orange-sýslu í Kaliforníu var gert að yfirgefa heimili sín í gær vegna eiturefnaleka. Um 26.000 lítrar af metýl-metakrýlati eru geymdir í birgðatanki sem fór að leka. Lekinn er sagður mjög alvarlegur. Efnið er rokgjarnt og eldfimt og er notað til að búa til plastefni. Yfirvöld óttast að tankurinn geti sprungið og valdið eitraðri mengun í andrúmsloftinu. Metýl-metakrýlat er ertandi fyrir húð, augu og slímhúð og getur valdið öndunarerfiðleikum. Ekki er vitað hvað olli lekanum en upp komst um hann á fimmtudaginn.

Go to News Site