Collector
Mengun í Varmá „ekki alveg nógu góð staða“ | Collector
Mengun í Varmá „ekki alveg nógu góð staða“
Fréttastofa RÚV

Mengun í Varmá „ekki alveg nógu góð staða“

Litarmengun hefur sett mark sitt á Varmá í Mosfellsbæ síðustu daga. Mengunin berst úr Skammadal þar sem Veitur bora eftir heitu vatni. Heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar óttast að mengunin geti haft áhrif á lífríki árinnar og gagnrýnir vinnubrögð við framkvæmdina. Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins í Mosfellsbæ, segir að setið sem berist í ána geti haft áhrif á vistkerfið í ánni og að smáfuglar hafi jafnvel fest sig í leirnum, „þannig þetta er ekki alveg nógu góð staða.“ Hann segir að efnið sem berst í ána og valdi mengun sé náttúrulegt efni, berg sem verið er að bora. Samkvæmt Herði voru framkvæmdir stöðvaðar fyrr í vikunni í samstarfi við sveitarfélagið eftir að mengunarinnar varð vart. Hann segir þó að breytt lagaumhverfi takmarki aðkomu heilbrigðiseftirlitsins að málinu. „Ég hefði nú viljað sjá meiri metnað í umhverfisvernd hjá Veitum,“ segir Hörður og vísar til þess að starfsleyfi framkvæmdanna kveði skýrt á um mengunarvarnir og stöðvun framkvæmda ef grugg berst í Varmá. Unnið er nú að gerð stærri setþróar neðar á framkvæmdasvæðinu sem ætlað er að draga úr menguninni. Veitur hafa frest til þriðjudags til að ljúka þeirri framkvæmd. Borið hefur á litarmengun í Varmá, sem rekja má til borana Veitna í Skammadal. Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Mosfellsbæjar segir Veitur hefðu getað sýnt meiri metnað í umhverfisvernd.

Go to News Site