Bæjarins Besta
Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða verður haldinn fimmtudaginn 28. maí kl. 15:15 í matsal Hvest á Torfnesi. Fundurinn er opinn öllum. Á dagskrá eru opnun fundar, ávarp heilbrigðisráðherra og forstjóra, kynning á ársreikningum og yfirlit yfir starfsemi stofnunarinnar fyrir árið 2025. Að loknum fundi verða kaffiveitingar í boði.
Go to News Site