Collector
Veitur segjast taka mengun í Varmá alvarlega | Collector
Veitur segjast taka mengun í Varmá alvarlega
Fréttastofa RÚV

Veitur segjast taka mengun í Varmá alvarlega

Veitur segjast taka mengun í Varmá vegna framkvæmda í Skammadal í Mosfellsbæ alvarlega. Skiljanlegt sé að það veki áhyggjur þegar litabreyting verður á ánni. Eftirlit verður bætt til að draga úr umhverfisáhrifum. Litarmengun hefur sett sitt mark á Varmá síðustu daga en hún orsakast af borsvarfi sem er fínt set eða bergmulningur sem berst í ánna þegar borað er eftir heitu vatni á svæðinu. Framkvæmdir hafa verið stöðvaðar tímabundið og Veitur fá frest til þriðjudags til að gera úrbætur. Í tilkynningu frá Veitum segir að og eftirlit hafi verið bætt til að draga úr umhverfisáhrifum í samráði við heilbrigðiseftirlitið og sveitarfélagið. Veitur segja unnið að því að útbúa svarfþró í Skammadal til að ná enn betur þeim fínefnum sem koma upp. Í tilkynningu frá Veitum segir að nú standi yfir umfangsmikil jarðhitaleit, sú mesta í um 50 ár, til að styðja við vaxandi samfélag og mannfjölgun. Stefnt er að því að bora 29 holur á komandi árum, þar af 15 holur í ár. Kalt vatn sem bora þarf vegna borunar í Skammadal er losað í skurð og Skammadalslæk eftir að hafa farið í gegnum hreinsun. Vatnið sameinast síðar Varmá. Með vatninu sem kemur upp úr holunni með bornum berst sandur og svarf sem eru náttúruleg efni. Gerðar hafa verið ráðstafanir til að gríða sem mest af grugginu úr vatninu áður en það fer í ánna. Allra fínasta efnið berst þó alla leið og litar ánna.

Go to News Site