Fréttastofa RÚV
Toronto borg í Kanada mun veita þeim sem ferðast til borgarinnar vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta fría smokka. Alls er búist við að um 300.000 manns komi til borgarinnar í sumar vegna mótsins. Sex leikir fara þar fram og meðal annars fyrsti leikur heimaþjóðarinnar Kanada gegn Bosníu og Hersegóvínu. Pride vika Toronto fer einnig fram meðan á mótinu stendur, en það hefst 11. júní og lýkur 19. júlí. Kanada heldur mótið ásamt Bandaríkjunum og Mexíkó. Heilbrigðisyfirvöld í borginni hafa lengi verið þekkt fyrir að tengja heilbrigðisherferðir við ýmsa íþróttaviðburði. Slíkt þekkist vel á Ólympíuleikum en í því tilfelli er það þó fyrir íþróttafólkið sjálft. Hjá Toronto eru smokkarnir hugsaðir fyrir áhorfendur. Yfirvöld fóru frumlega leið í hönnun og prýða til að mynda lyndistákn fyrir ferskjur og eggaldin umbúðir smokkanna. Alls eru sex mismunandi umbúðir í boði. Herferðin ber nafnið condomTO og er henni ætlað að stuðla að öruggu kynlífi og vernda heilsu íbúa og gesta á meðan knattspyrnuhátíðin stendur yfir, sem hefst 11. júní. Dr. Michelle Murti, yfirlæknir heilbrigðisyfirvalda í Toronto, sagði við Reuters að hönnunin væri „ein af mínum uppáhalds… ferskjan og eggaldinið að reyna að verja skotin… við köllum þetta „Peaches and Cream’.“ Toronto hefur langa hefð fyrir að nota skemmtilega og sérhannaða smokka í tengslum við stórviðburði eins og World Pride og Pan American-leikana.
Go to News Site