Collector
Íslandsmeistarar í hreystigreip mætast: Hvor nær að hanga lengur? | Collector
Íslandsmeistarar í hreystigreip mætast: Hvor nær að hanga lengur?
Fréttastofa RÚV

Íslandsmeistarar í hreystigreip mætast: Hvor nær að hanga lengur?

Tólf skólar keppa í úrslitum Skólahreystis í kvöld þar sem reynir á kraft, styrk og þol keppenda í ýmsum greinum. Mikil spenna ríkir fyrir úrslitum í hreystigreip. Saga Björgvinsdóttir, nemandi í Grunnskólanum á Ísafirði, endurheimti Íslandsmetið í undakeppninni í byrjun maí þegar hún hékk í 30 mínútur og 6 sekúndur í keppni kvöldsins. Með því bætti hún fyrra met um fimm mínútur. Dagbjört Lilja Oddsdóttir, nemandi í Lágafellsskóla, átti metið áður, en hún hékk í 25 mínútur og eina sekúndu í úrslitum Skólahreysti í fyrra. Saga og Dagbjört keppa báðar til úrslita í kvöld. Úrslit í Skólahreysti hefjast klukkan 19.45 og er í beinni útsendingu á RÚV. Í myndskeiðinu hér að ofan má sjá Íslandsmetið slegið nokkrum sinnum.

Go to News Site