Collector
Formlegar viðræður hafnar í Hafnarfirði | Collector
Formlegar viðræður hafnar í Hafnarfirði
Fréttastofa RÚV

Formlegar viðræður hafnar í Hafnarfirði

Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa hafið formlegar viðræður um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði að því er kemur fram í tilkynningu. Þar segir að vinna við málefnasamning sé þegar hafin og stefnt að því að ljúka viðræðum hratt. Markmiðið er að kynna málefnasamning nýs meirihluta þriðjudaginn 26. maí. „Aðilar leggja áherslu á gagnkvæmt traust og trúnað á meðan á viðræðunum stendur,“ segir í tilkynningunni sem Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar, og Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingar, skrifa undir. Í vikunni slitnaði upp úr viðræðum milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknar vegna þess sem Sjálfstæðismenn sögðu vera trúnaðarbrest af hálfu oddvita Framsóknar.

Go to News Site