Collector
Skothvellir við Hvíta húsið | Collector
Skothvellir við Hvíta húsið
Fréttastofa RÚV

Skothvellir við Hvíta húsið

Skothvellir heyrðust við Hvíta húsið í Washington í kvöld um klukkan ellefu að íslenskum tíma. Donald Trump Bandaríkjaforseti var í Hvíta húsinu þegar skothvellirnir heyrðust að reyna að ná samkomulagi við Írana. Lögregla girti af svæðið og þjóðvarðarliðar meinuðu fréttamanni AFP fréttaveitunnar að fara á svæðið. Alríkislögreglan og leyniþjónustan eru á vettvangi. Fréttaveitan AFP hefur eftir kanadískum ferðamanni að hann hafi heyrt um 20-25 skothvelli sem hann hélt fyrst að hefðu verið flugeldar og síðan tók hann eftir því að fólk í kringum hann var á hlaupum. Fréttamaður ABC News, Selina Wang var á vettvangi og lýsti því einnig að hún hefði heyrt tugi skothvella. Þrisvar sinnum hafa verið gerðar tilraunir til að skjóta Bandaríkjaforseta í embætti, síðast á hátíðarkvöldverði Samtaka blaðamanna Hvíta hússins í Washington þann 25. apríl. Fréttin verður uppfærð.

Go to News Site