Collector
Fjörður vann Gullpálmann | Collector
Fjörður vann Gullpálmann
Fréttastofa RÚV

Fjörður vann Gullpálmann

Norsk-rúmenska kvikmyndin Fjörður vann Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöld. Leikstjóri myndarinnar er Cristian Mungiu, en með aðalhlutverk fara Renate Reinsve og Sebastian Stan. Myndin fjallar um norsk-rúmenska fjölskyldu sem flytur frá Rúmeníu í smábæ í Noregi og fjallar um ólíka menningarheima og umburðarlyndi. Handritið er innblásið af máli í Noregi þar sem fjölskylda var rannsökuð af barnaverndarnefnd. Kvikmyndin Minotaur , í leikstjórn Andreï Zviaguintsev, hlaut Grand-Prix verðlaunin hátíðarinnar. Kvikmyndin fjallar um rússneska millistéttarfjölskyldu sem þarf að takast á við breyttan veruleika þegar innrás Rússa hefst í Úkraínu. Zviaguintsev, sem er Rússi og harður andstæðingur innrásarinnar í Úkraínu, hefur áður tekið fyrir rússneskan raunveruleika í kvikmyndum sínum, líkt í kvikmyndinni Leviathan .

Go to News Site