Collector
Jarðskjálfti að stærðinni 3,5 | Collector
Jarðskjálfti að stærðinni 3,5
Fréttastofa RÚV

Jarðskjálfti að stærðinni 3,5

Stærsti skjálftinn í jarðskjálftahrinunni mældist 3,5.Veðurstofa Íslands / Náttúruvárvakt Jarðskjálfti að stærðinni 3,5 varð kl. 05:56 í morgun. Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg, tæplega 10 km vestur af Reykjanestá, upp úr kl. 21:00 í gærkvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands hafa yfir 120 skjálftar mælst síðan. Veðurstofunni hafa ekki borist tilkynningar um að sjálftarnir hafi fundist í byggð. Ekki mælist órói á svæðinu og GNSS-stöðvar á svæðinu sýna ekki markverðar breytingar í bakgrunni. Síðast varð svipuð hrina á þessu svæði í febrúar og apríl á þessu ári og vörðu þær frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga, segir í upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.

Go to News Site