Fréttastofa RÚV
„Ég svaf mjög vel. Maður er lengi að sofna eftir þennan leik. Það er mikið adrenalín og mikið í gangi í þessum leik. En það var mjög ljúft að leggjast á koddann í gær.“ Anton talaði um að Blikar ætluðu sér að jafna orkustig KR-inga í upphafi leiks. En leið honum einhvern tímann eins og þetta væri komið? „Kannski í 6-2 og komnar 85 mínútur á klukkuna. Þá var maður orðinn rólegur. En svo kemur þriðja markið hjá þeim. Ég held að þeim líði alltaf eins og þeir geti skorað mörk. Þannig þeir hafa trúna. Þannig það þýðir ekkert að slökkva á sér.“ Blikar ætluðu sér að fara aftur fyrir KR-inga. Þá talaði hann um að Blikar ætluðu sér að gefa mikið út í teig þar sem KR-ingar væru í vandræðum með það svæði. Þá ræddi hann einnig lífið hjá Blikum eftir að Ólafur Ingi Skúlason tók við liðinu.
Go to News Site