Collector
Fjölmennt lið lögreglu í aðgerðum á Kársnesi | Collector
Fjölmennt lið lögreglu í aðgerðum á Kársnesi
Fréttastofa RÚV

Fjölmennt lið lögreglu í aðgerðum á Kársnesi

Fjölmennt lið lögreglu stóð í aðgerðum í Kársnesi í Kópavogi upp úr hádegi í dag. Þar voru saman komnir bæði almennir lögreglumenn og liðsmenn sérsveitar ríkislögreglustjóra. Lögregla sendi minnst þrjá bíla almennu lögreglunnar í útkallið auk þess sem sérsveitin mætti með sex menn á þremur bílum. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvað varð til þess að lögregla fór á staðinn. Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra, staðfesti í samtali við fréttastofu að sérsveitin hefði verið lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu til aðstoðar. Vísir greindi frá því í morgun að fjórir lögreglubílar hefðu verið kallaðir út á Laugaveg. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru ekki tengsl þarna á milli. Fréttin verður uppfærð.

Go to News Site