Collector
Drengur fannst látinn í Rennes með handklæði bundið um hálsinn | Collector
Drengur fannst látinn í Rennes með handklæði bundið um hálsinn
Fréttastofa RÚV

Drengur fannst látinn í Rennes með handklæði bundið um hálsinn

Tólf ára drengur fannst látinn með „blautt baðhandklæði bundið mjög þétt“ um hálsinn í borginni Rennes í Frakklandi í dag. Franska lögreglan hefur hafið morðrannsókn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu saksóknarans í Rennes. Drengurinn fannst í runna við bakka árinnar Vilaine, sem rennur í gegnum borgina, eftir að sjómaður heyrði óp í barni og hringdi í lögreglu. „Aðstæðurnar sem leiddu til dauðans eiga eftir að koma í ljós,“ en „aðkoma þriðja aðila er meðal tilgátanna,“ segir í yfirlýsingunni. Lögreglan hefur hafið rannsókn í kringum ána og íbúðabyggð í grennd.

Go to News Site