Fréttastofa RÚV
Kimi Antonelli vann sinn fjórða kappakstur í röð í Formúlu 1 þegar hann kom fyrstur í mark í kanadíska kappakstrinum í kvöld. Dramatísk uppákoma varð hjá liðsfélaga hans hjá Mercedes, George Russell. Þeir börðust hart um efsta sætið stærstan hluta kappakstursins og skiptust nokkrum sinnum á að leiða. Á 30. hring kom upp bilun í bíl Russells sem stöðvaðist á brautinni og hann þurfti að hætta. Mercedes ökuþórinn Kimi Antonelli í Kanada.AP/The Canadian Press / Christinne Muschi Lewis Hamilton varð annar á Ferrari og þá náði Max Verstappen loks sínum fyrsta verðlaunapalli á tímabilinu fyrir Red Bull. Sigurinn styrkir stöðu Antonelli verulega á toppi stigalista ökuþóra. Ítalinn er nú með 43 stiga forskot á Russell.
Go to News Site