Fréttastofa RÚV
Strandveiðifélag Íslands hefur sent inn tvær formlegar kvartanir til umboðsmanns Alþingis og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna kerfisbundinnar misnotkunar á milliverðlagningu í fyrirtækjasamstæðum íslenskra útgerðarfélaga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi fjölmiðlum. Kvörtun félagsins til umboðsmanns Alþingis snýr að ófullnægjandi framkvæmd og eftirliti stjórnvalda með 57. gr.a í lögum um tekjuskatt nr. 90/2022, sem innleiðir armslengdarregluna og BEPS-tilmæli OECD. Samkvæmt Strandveiðifélaginu hefur eftirlitið veikst enn frekar eftir að embætti skattrannsóknarstjóra var lagt niður með lögum nr. 29/2021. Kvörtun félagsins til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) er vegna þess sem strandveiðifélagið kallar samkeppnisbrenglun á íslenskum sjávarútvegsmarkaði og vangaveltna um hvort valkvætt eftirlitsleysi með milliverðlagningu jafngildi ríkisaðstoð í skilningi 61. gr. EES-samningsins. Kvörtunin er lögð fram á grundvelli 31. gr. SCA-samningsins. Stór útgerðarfélög geti fært hagnaðinn erlendis Þórólfur Júlían Dagsson, stjórnarmaður Strandveiðifélags Íslands, sendi kvartanirnar tvær til umboðsmanns Alþingis og ESA fyrir hönd félagsins. Í fréttatilkynningunni kemur fram að lóðrétt samþætt stórútgerð geti skráð innra verð á fiski og fært hagnaðinn frá útgerðarhlutanum, þar sem veiðigjöld eru reiknuð, yfir í söluskrifstofur erlendis þar sem skattaprósentan sé lægri. Þetta lækki reiknistofn til veiðigjalda og tekjuskattsgreiðslna á Íslandi. Vísað er í álit Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2012 þar sem fram kemur að það „kunni að vera hvatar hjá lóðrétt samþættum útgerðarfyrirtækjum sem valda því að þau gefa upp sem lægst verð í innri viðskiptum milli vinnslu- og útgerðarhluta fyrirtækjanna.“ Segja íslenska ríkið og sjómenn hlunnfarna Þórólfur bendir á að staða strandveiðisjómanna sé ójöfn gagnvart stórum útgerðarfyrirtækjum, Strandveiðifélagið hafi enga möguleika til að flytja hagnað erlendis. Félagið tali fyrir þá sem starfi eftir reglum, sjálfstæða útgerðarmenn, vinnslur án eigin kvóta og ný fyrirtæki sem reyna að hasla sér völl. Íslenska ríkið sé sjálft hlunnfarið. Þórólfur segir einnig að sjómenn tapi sjálfir á þessu fyrirkomulagi því milliverðlagningin lækki uppgefið aflaverðmæti og þar með reiknistofn hlutaskipta.
Go to News Site