Collector
Fuglar og menn hlaut Einarinn – Heimkoman fékk Ljóskastarann | Collector
Fuglar og menn hlaut Einarinn – Heimkoman fékk Ljóskastarann
Fréttastofa RÚV

Fuglar og menn hlaut Einarinn – Heimkoman fékk Ljóskastarann

Heimildamyndin Fuglar og menn hlaut Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar, hátíðar íslenskra heimildamynda í ár. Leikstjórn myndarinnar er í höndum Ingvars Þórðarsonar, Ragnars Axelssonar og Mika Kaurismaki og Ingvar sá auk þess um framleiðslu. Í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar kemur fram að myndin fjalli um hjónin Ólaf Aðalsteinsson og Jóhönnu Óladóttur sem hafa í yfir tvo áratugi helgað líf sitt uppbyggingu og verndun æðarvarps í hinum afskekkta Loðmundarfirði á Austfjörðum. Í firðinum, sem lagðist í eyði fyrir hálfri öld, hafa þau byggt upp eitt öflugasta varpsvæði landsins við krefjandi aðstæður. Heimildamyndin Heimkoman hlaut Ljóskastarann, dómnefndarverðlaun Skjaldborgar, fyrir mynd í fullri lengd. Leikstjórar myndarinnar eru Helgi Felixson og Titti Johnson, og Helgi framleiddi einnig myndina. Heimkoman er persónuleg heimildamynd um Mike Årsjö, sem ólst upp í regnskógum Papúa Nýju-Gíneu en lifir á fullorðinsaldri á mörkum tveggja heima. Hann snýr aftur eftir margra ára fjarveru til hjartnæmra endurfunda við fjölskyldu, menningu og minningar, en heimkoman er um leið átakanleg uppgjörsferð. Í umsögn dómnefndar segir: „Þessi heimildamynd er marglaga ferðalag sem fléttar saman flókin félagsleg og tilfinningaleg viðfangsefni í einstaka mynd. Hún rammar inn þörfina fyrir að tilheyra með innsýn inn í sjálfsmynd, ást og fjölskyldubönd. Myndin fjallar á fínlegan hátt um umhverfismál, trúarbrögð og ásókn kapítalismans í innstu afkima jarðarinnar. Þó hefur áhorfandinn rúmt svigrúm til að mynda sér eigin skoðanir.“ Skjalda, dómnefndarverðlaun Skjaldborgar fyrir heimildastuttmynd, hlaut kvikmyndin Blýmenning, (e. Plom Culture) í leikstjórn Línette. Myndin er í stíl gamallar kynfræðslumyndar og fylgir komu skemmtiferðaskips til Seyðisfjarðar en verður að frásögn um innrás, aðdráttarafl og brothætt jafnvægi náttúrunnar. Í umsögn dómnefndar segir: „Þessi stuttmynd ögrar formi heimildarmyndarinnar með því að víkka út mörk kvikmyndaformsins. Umhverfismálefnum er lýst með ljóðrænni kímni og varpar ljósi á fjöldaferðamennsku á hugmyndaríkan og frumlegan hátt.“ Ásgeirinn veittur í annað sinn Ásgeirinn var veittur í annað sinn í sögu hátíðarinnar en þau verðlaun hlýtur framúrskarandi áhorfandi og eru verðlaunin veitt til heiðurs Ásgeiri H. Ingólfssyni, menningarblaðamanni og ljóðskáldi, sem var kær fastagestur hátíðarinnar en féll frá 2025, segir í fréttatilkynningu skipuleggjenda hátíðarinnar. Ásgeir skrifaði fjölda greina um hátíðina og lagði kapp á að mæta á Skjaldborg ár hvert. Sigurvegari verðlaunanna hlýtur hátíðarpassa á næstu Skjaldborgarhátíð. Ásgeirinn í ár hlaut Patreksfirðingurinn Jóna Júlía Böðvarsdóttir. Heiðursgestir frá heimskautasvæðum Þetta er í 19. sinn sem Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda var haldin á Patreksfirði. Heiðursgestir í ár voru Maria Tórgarð, Johannes Vang og Arina Kleist, kvikmyndagerðarfólk frá Grænlandi, Færeyjum og Sápmi-héruðum Norður-Skandinavíu. Þemastefið í dagskránni var hugtakið frásagnarfullveldi (e. narrative sovereignty). Í dómnefnd Skjaldborgar 2026 sátu Hrafnhildur Gunnarsdóttir, verðlaunaleikstjóri og framleiðandi, Kati Juurus, heimildamyndagerðarkona sem hefur starfað sem listrænn stjórnandi DocPoint í Helsinki og framkvæmdastjóri fyrir finnska ríkisútvarpið, og Þóra Sigríður Ingólfsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands. Alls voru tíu heimildamyndir frumsýndar á hátíðinni, sex verk í vinnslu voru kynnt og þrjár stuttar heimildamyndir voru sýndar utan keppni. Kvikmyndasafn Íslands sýndi einnig úrval verka Magnúsar Jóhannssonar.

Go to News Site