Collector
Drengurinn fundinn heill á húfi | Collector
Drengurinn fundinn heill á húfi
Fréttastofa RÚV

Drengurinn fundinn heill á húfi

Tveggja ára drengur sem leitað var að í Svíþjóð í gær er fundinn heill á húfi . Hann var nokkuð kaldur en við góða heilsu þegar hann fannst samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Drengurinn hvarf við sveitabæ stuttu fyrir hádegi í gærdag í Nyåker í sveitarfélaginu Nordmaling í Svíþjóð. Umfangsmikil leit var gerð að drengnum og tóku björgunarsveitir, lögregla með leitarhunda og hermenn þátt í leitinni. Lögreglan hefur ekki gefið upp hvort hvarf drengsins teljist saknæmt.

Go to News Site