Fréttastofa RÚV
Um 55% sérfræðilækna sem starfa á Landspítala sinna aðeins hlutastarfi á spítalanum og flestir þeirra starfrækja eigin læknastofur samhliða. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, segir hlutfallið mun hærra en á háskólasjúkrahúsum annars staðar og þetta komi niður á skipulagi, mönnun og þátttöku lækna í kennslu og vísindastarfi. Það að sami læknir vinni fyrir Landspítala og bjóði upp á sambærilega þjónustu í einkarekstri geti einnig valdið hagsmunaárekstrum. Skýrara regluverk á Norðurlöndunum „Við erum í nánu samstarfi við önnur norræn háskólasjúkrahús og þar er skýrara regluverk í kringum blönduð störf að þessu tagi.“ Runólfur segir útgjöld vegna heilbrigðisþjónustu stöðugt að aukast og það sé mikilvægt að hámarka nýtingu úrræða og gæta hagkvæmni allsstaðar. Einkarekin læknisþjónusta geti verið hagkvæm á vissan hátt því hún sé oft á tíðum afkastamikil en Landspítali hafi hlutverki að gegna sem háskólasjúkrahús og þurfi á meiri mannafla að halda. Og hvers vegna ætli sérfræðilæknar leiti í einkarekstur meðfram starfi sínu á Landspítalanum? „Það verður bara að segjast að tekjumöguleikarnir eru miklir, allavegana það miklir að það veldur sókn í þessi störf,“ segir Runólfur. Meira en helmingur sérfræðilækna sem starfa á Landspítala er aðeins í hlutastarfi á spítalanum og flestir þeirra reka eigin læknastofu samhliða. Forstjóri Landspítala lýsti áhyggjum af þróuninni á ársfundi spítalans.
Go to News Site