Fréttastofa RÚV
FH vann 3-2 útisigur á Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld fyrir framan 1.232 áhorfendur. Eftir því sem næst verður komið er það áhorfendamet á leik í efstu deild kvenna í fótbolta á Íslandi. Allur ágóði af miðasölu í kvöld rann til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru. Agla María Albertsdóttir kom Breiðabliki yfir í kvöld en Ingibjörg Magnúsdóttir jafnaði fyrir FH. Aftur komust Blikar yfir með marki Hrafnhildar Ásu Halldórsdóttur en Deja Sandoval jafnaði fyrir FH í 2-2 áður en Ída Marín Hermannsdóttir skoraði svo sigurmark FH stundarfjórðungi fyrir leikslok. Toppbaráttan harðnar Breiðablik er þó eftir sem áður á toppnum með 15 stig en FH og ÍBV koma svo í næstu sætum með 13 stig hvort lið og toppbaráttan harðnaði því með úrslitum kvöldsins. Nadía Atladóttir tryggði Val svo 1-0 sigur á hennar gamla liði Víkingi í kvöld og Eva Marie Wirtz skoraði sigurmark Stjörnunnar á Þrótti í leik sem fór 1-0.
Go to News Site