Collector
Undirskriftarlisti stofnaður gegn nýjum meirihluta í Hafnarfirði | Collector
Undirskriftarlisti stofnaður gegn nýjum meirihluta í Hafnarfirði
Fréttastofa RÚV

Undirskriftarlisti stofnaður gegn nýjum meirihluta í Hafnarfirði

Undirskriftarlistinn var settur af stað á Ísland.is í kvöld gegn nýjum meirihluta í Hafnarfirði. Skömmu eftir miðnætti voru komnar um 850 undirskriftir komnar á listann. Til stendur að Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking í Hafnarfirði kynni meirihlutasáttmála á félagsfundum klukkan fimm síðdegis í dag, þriðjudag. Að loknum félagsfundum flokkanna verður blaðamannafundur í Hamranesi þar sem sáttmáli flokkanna þriggja verður undirritaður og kynntur. Undirskriftarlistinn er til stuðnings Framsóknarflokknum og Valdimari Víðissyni, fráfarandi bæjarstjóra. Í lýsingu undirskriftarlistans segir að undirritaðir mótmæli harðlega myndun nýs meirihluta í Hafnarfirði því farið sé gegn skýrum vilja kjósenda sem kom fram í kosningunum og því sé verið að bregðast trausti kjósenda. Þá segir einnig að margir kjósendur hafi kosið með það að markmiði að vilja sjá Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk halda áfram samstarfi sínu, en með myndun nýs meirihluta sé Framsóknarflokkurinn útilokaður. Alls voru 24.593 á kjörskrá í Hafnarfirði og 11 fulltrúar eru í bæjarstjórn. Atkvæði skiptust þannig að Sjálfstæðisflokkurinn fékk 3 fulltrúa, Framsóknarflokkurinn 3, Samfylking 3, Viðreisn 2, Miðflokkurinn 1 og Vinstrið fékk engan fulltrúa. Í síðustu viku sögðust oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar ekki geta unnið með Framsóknarflokknum í bæjarstjórn, eftir að í ljós kom að Framsóknarflokkur átti í viðræðum við báða flokka án vitneskju hins.

Go to News Site