Collector
Ræða áfram um þjóðaratkvæðagreiðslu | Collector
Ræða áfram um þjóðaratkvæðagreiðslu
Fréttastofa RÚV

Ræða áfram um þjóðaratkvæðagreiðslu

Þingfundur hefst á Alþingi klukkan hálf tvö í dag. Tvö mál eru á dagskrá: óundirbúnar fyrirspurnir og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður. Þetta verður fjórði dagur seinni umræðu um hvort halda eigi þjóðaratkvæði um viðræðurnar. Stjórnarliðar leggja til að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram 29. ágúst og ef það á að ganga eftir þarf að ljúka umræðunni í þessari viku og meirihluti þingheims að samþykkja þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæði. Minnihlutinn í utanríkismálanefnd leggur til að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram 17. október. Úr þingsal. Safnmynd.RÚV / Ragnar Visage

Go to News Site