Collector
Fjórir látnir eftir að skólarúta varð fyrir lest | Collector
Fjórir látnir eftir að skólarúta varð fyrir lest
Fréttastofa RÚV

Fjórir látnir eftir að skólarúta varð fyrir lest

Tvö börn og tveir fullorðnir létust þegar skólarúta varð fyrir lest í Buggenhout í Belgíu. Samgönguráðherra landsins hefur staðfest að hlið við lestarsporið hafi verið niðri þegar slysið varð. Slysið varð klukkan rúmlega átta í morgun að staðartíma. VRT-fréttamiðillinn í Belgíu greindi frá því í morgun að hlið við lestarsporið hafi verið niðri þegar slysið varð og að rauð umferðarljós hafi logað. Slysið varð um einn kílómetra frá lestarstöðinni í Buggenhout. An Berger, talskona alríkislögreglunnar í Belgíu, segir ökumann skólarútunnar hafa verið að keyra á vegi samsíða lestarsporinu og að hann hafi síðan beygt yfir á sporið meðan hliðið var niðri. Thomas Baeken, hjá belgíska lestarfyrirtækinu Infrabel, sagði lestarstjórann hafa notað neyðarhemla til að bremsa en ekki getað komið í veg fyrir áreksturinn. Níu voru í rútunni; sjö nemendur, bílstjóri og umsjónarmaður nemendanna. Rútan var á leiðinni í sérkennsluskóla og Berger segir nemendur hafa verið í gagnfræðaskóla. Enginn í lestinni slasaðist. Fjórir létust þegar skólarúta varð fyrir lest í Buggenhout í Belgíu í morgun. Rútan keyrði út á lestarspor en hlið við það var niðri þegar slysið varð. „Hugur minn er hjá fórnarlömbum slyssins,“ sagði Jean-Luc Crucke, samgönguráðherra. Zuhal Demir menntamálaráðherra sagði fréttirnar af slysinu hörmulegar. „Hugur minn er hjá fórnarlömbunum, fjölskyldum þeirra og þeim sem koma að slysinu.“

Go to News Site