Collector
Björgunarskip til aðstoðar aflvana fiskibáti | Collector
Björgunarskip til aðstoðar aflvana fiskibáti
Fréttastofa RÚV

Björgunarskip til aðstoðar aflvana fiskibáti

Lítill fiskibátur óskaði eftir aðstoð í morgun þegar vél bátsins bilaði og rafmagnið fór af honum. Báturinn var þá við Syðrahraun í Faxaflóa. Björgunarskipið Jóhannes Briem var kallað út og sigldi frá Reykjavík til aðstoðar. Það kom að fiskibátnum rétt fyrir klukkan tólf. Báturinn var tekinn í tog og verður dreginn til Hafnarfjarðar. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu er engin hætta á ferðum. Viðbúið er að björgunarskipið og báturinn komi til hafnar milli eitt og tvö í dag. Jóhannes Briem á leið að fiskibátnum.Slysavarnafélagið Landsbjörg

Go to News Site