Vísir
Fleiri ástralskar konur, sem gengu á árum áður til liðs við Íslamska ríkið, og börn þeirra hafa ferðast til Ástralíu. Um er að ræða sex konur og þrettán börn sem lentu í Sydney og í Melbourne í morgun. Þær hafa ekki verið ákærðar enn en lögreglan segir það til skoðunar. Þrjár af fjórum konum sem sneru aftur til Ástralíu fyrr í mánuðinum hafa verið ákærðar fyrir þrælahald og hryðjuverkastarfsemi og sitja nú í gæsluvarðhaldi.
Go to News Site