Collector
Leikskólabörn alveg með á hreinu hvað það þýðir að vera góður vinur | Collector
Leikskólabörn alveg með á hreinu hvað það þýðir að vera góður vinur
Fréttastofa RÚV

Leikskólabörn alveg með á hreinu hvað það þýðir að vera góður vinur

700 leikskólabörn streymdu inn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn við opnun í morgun, heilsuðu upp á dýrin og leystu alls kyns verkefni um vináttu og kærleika. Að því loknu var komið að tónleikum með vináttubangsanum Blæ og Páli Óskari. Krakkarnir glöddust mikið við að sjá bangsann Blæ í fullri stærð. Mörg börn fá sinn eigin Blæ við upphaf leikskólagöngu sinnar og hann er notaður við kennslu og samverustundir. Börnin voru alveg með á hreinu í hverju vinátta felst.

Go to News Site