Collector
„Það var margt mun auðveldara en ég átti von á“ | Collector
„Það var margt mun auðveldara en ég átti von á“
Fréttastofa RÚV

„Það var margt mun auðveldara en ég átti von á“

Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar í Hafnarfirði skrifuðu undir sáttmála um nýtt meirihlutasamstarf síðdegis í dag. Málefnasáttmálinn var borinn undir flokksmenn fyrr í dag og kynntur á blaðamannafundi á sjöunda tímanum. Sáttmálinn leggur áherslu á að gera Hafnarfjörð að fjölskylduvænu sveitarfélagi með traustan rekstur og sterka grunnþjónustu og atvinnulíf. Þórður Þórarinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og verðandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segist vanur að fá risastór verkefni í fangið og vinna góð verk fyrir umbjóðendur. Hann hlakki til verksins. Ákall hefur verið eftir því og undirskriftasöfnun verið hafin þar sem þess er krafist að Valdimar Víðisson, fráfarandi bæjarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins, sitji áfram. Þórður segist hafa þurft að ávinna sér traust bæjarbúa, sama hvað. „Vissulega var vinsæll bæjarstjóri, enda hef ég ekkert heyrt nema gott um hann. Það verður ávallt verkefni mitt að ávinna mér traust bæjarbúa,“ segir hann. „Fólk má gera það sem það vill“ Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks og nýr formaður bæjarráðs, segir eðlilegt að fólk mótmæli. „Við erum bara í lýðræðislegu samfélagi, fólk má gera það sem það vill. Það má safna undirskriftum og gera nákvæmlega það sem það vill, auðvitað innan marka. Þarna eru einhverjir að mótmæla og það er allt í lagi. Við munum vinna okkur traust og við höfum mikið traust. Við erum flokkar sem erum samtals með stuðning 60 prósent kjósenda. Það skiptir máli að við erum með mjög mikinn meirihluta Hafnfirðinga á bak við okkur og ég hef engar áhyggjur af öðru en að það verði áfram þannig og að við aukum við fylgið í næstu kosningum.“ Spurður segir Orri að komið hafi til greina að hann yrði bæjarstjóri. „En maður þarf auðvitað að semja og þetta þarf að vera sanngjarnt og við komumst að þessari niðurstöðu og ég er mjög sáttur við hana.“ Hann segir Þórð vera mann sátta og samlyndis og vanan því að vinna með mörgum ólíkum aðilum. „Þannig að ég hef enga trú á öðru en að hann verði bæjarstjóri allra flokkanna og allra Hafnfirðinga.“ Samgöngur deilumál Orri segir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hljóta að verða endurskoðaðan. Í málefnasáttmálanum segir að farið verði fram á endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins „með tilliti til fjármögnunar og tímasetninga verkefna innan Hafnarfjarðar“. Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, segist þó ekki ætla að gera málamiðlanir í samgöngumálum. Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar, er nýr forseti bæjarstjórnar. Hún segir samstöðu hafa verið um skipan embætta. „Það var margt mun auðveldara en ég átti von á“. Meirihlutinn ætli að gera Hafnarfjörð að betri bæ fyrir börn og ungmenni. Aðrir flokkar og önnur málefni Í kosningabaráttunni kallaði Samfylkingin eftir breytingum. Þó Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í þrjú kjörtímabil segir Hildur Rós breytingar í aðsigi. Samstarfsflokkar séu aðrir og áherslurnar í málefnasamkomulaginu sömuleiðis. Hún telur Samfylkinguna njóta trausts Hafnfirðinga þrátt fyrir að flokkurinn hafi misst tvo menn frá því í síðustu sveitarstjórnarkosningum. „Við erum ábyrg og höfum sýnt það en það var bara kallað eftir öðru á einhverjum stöðum. En almennt held ég að við séum með traust Hafnfirðinga.“ Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Viðreisn skrifuðu síðdegis undir nýtt meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. Þórður Þórarinsson verður bæjarstjóri. Áhersla er á að gera Hafnarfjörð að betri bæ fyrir fjölskyldur.

Go to News Site